Höfundur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Böðvar Guðmundsson fæddist 9. janúar 1939 á Kirkjubóli í Hvítársíðu. Hann er yngstur þriggja barna hjónanna,Ingibjargar Sigurðardóttur húsmóður og Guðmundar Böðvarssonar skálds og bónda á Kirkjubóli í Hvítársíðu. Fyrsta bók Böðvars ljóðabókin -Austan Elivoga- kom út árið 1964. Rithöfundarferill hans hefur bæði verið langur og farsæll og að sama skapi afar fjölbreyttur og eftir hann liggja fjölmörg ritverk; ljóðabækur, leikrit og skáldsögur. Böðvar hefur einnig samið sönglög og texta og m.a. gefið út tvær hljómplötur. Auk þessa hefur hann þýtt fjölda erlendra verka bæði fyrir börn og fullorðna.

Böðvar hlaut m.a. Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsöguna Lífsins tré sem er sjálfstætt framhald Híbýla vindanna. Saman eru þessar bækur oftast nefndar vesturfarasögurnar. Þær voru færðar í sviðsbúning og sýndar í Borgarleikhúsinu leikárið 2004-2005, í leikgerð Bjarna Jónssonar.

Leikrit Böðvars eru fjölmörg, meðal þeirra má nefna leikritin Krummagull og Skollaleik 1976, Heimilisdraugar 1979, Úr aldaannál 1982, Ættarmótið 1990 og Kvennaskólaævintýrið 1994 sem Böðvar samdi fyrir Freyvangsleikhúsið og hafði til fyrirmyndar Kvennaskólann að Laugalandi í Eyjafirði.
/RÞ