|
Leikritið ,,Þar sem djöflaeyjan rís" eftir Einar Kárason var verkefni leikdeildar Eflingar árið 2008. Leikstjóri var Hörður Þór Benónýsson. Æfingar hófust í framhaldi af leiklistarnámskeiði sem haldið var á Breiðumýri í janúar undir stjórn Maríu Sigurðardóttur. Milli 30 og 40 manns, leikarar og aðstoðarfólk tóku þátt í uppfærslunni. Frumsýnt var í apríl við mikinn fögnuð áhorfenda og urðu sýningar alls 14 og uppselt á þær flestar. |
|
|
Djöflaeyjan
