| West side story |
|
Verkefni vetrarins hjá Leikdeild Eflingar er leikverkið West side story eftir Arthur Laurents og Stephen Sondheim í þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar. Leikstjóri er Arnór Benónýsson og tónlistarstjóri Jaan Alavere. Leikdeildin hefur til sölu gjafabréf í leikhús á Breiðumýri sem er tilvalin jólagjöf fyrir leikhúsunnendur. Athugið að forsala á West side story hefst í febrúar. Verð á gjafabréfi og í forsölu: 2.300 kr.
Almennt miðaverð: 2.800 kr.
|

