Í gegnum tíðina - Síðustu sýningar!

Leikdeild Eflingar sýnir frumsamið leikverk, Í gegnum tíðinaá Breiðumýri í Reykjadal. Höfundur og leikstjóri er Hörður Þór Benónýsson. Verkið er fjölskyldusaga með gamansömu ívafi sem spannar tímbilið frá 1950-1980 og inn í verkið fléttast þekkt dægurlög frá þessu tímabili. Tónlistarstjóri er Pétur Ingólfsson.

Nú hafa yfir 1000 manns séð verkið Í gegnum tíðina á Breiðumýri! Þökkum frábærar viðtökur og undirtektir!

Athugið: SÍÐUSTU SÝNINGAR!

15. sýning föstudaginn 27. apríl kl. 20:30
16. sýning sunnudagurinn 29. apríl kl. 20:30  
17. sýning mánudaginn 30. apríl kl. 20:30   
  Síðasta sýning!    


Við vekjum athygli á sérstöku leikhústilboði sem Dalakofinn býður í samstarfi við okkur þar sem hægt er að fá saman í pakka mat og leikhúsmiða. Skógarberjakryddað lambalæri í aðalrétt og ferskir ávextir með vanillukremi í eftirrétt. 

  Miðaverð Miði & matur
Fullorðnir: 2.800 kr. 5.900 kr.
Eldri borgarar: 2.400 kr. 5.600 kr.
Börn (16 ára og yngri): 1.800 kr. 5.100 kr.


Minnum á veitingasölu Kvenfélags Reykdæla á sýningum.

Miðapantanir í síma 618 3945 eða í tölvupósti á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Ritun leikverksins er stykrt af Menningarráði Eyþings og Félags- og menningarmálanefnd Þingeyjarsveitar.

 

 
Verið velkomin á vef Leikdeildar Eflingar

Leikdeild Ungmennafélagsins Eflingar hefur aðsetur að Breiðumýri í Reykjadal og löngum hefur gróskumikil leikstarfsemi farið þar fram. Hér á vefsíðunni munum við birta auglýsingar um leiksýningar ásamt fleiri gagnlegum upplýsingum.